Undir heiðum himni
Og undir sólinni
Eins og fjöllin sit ég alltaf á sama staðnum
En sem skriðjökull
Á ég það til að taka mér
Smá göngutúr
En við og við
Vil ég renna mér
Sem árnar og fljótin út í vötnin
Og stinga mér út í lónin
Það er ég
Það er ég
Náttúran
Þar sem grasið grær
Þar sem trén eru allstaðar
Þar sem blómin vaxa mörg er mig að finna
Í þrastarhreiðri
Jafnt sem á hafsbotni
Inn í skógi uppí lofti útum allt
Því þar er ég
Ég er hér og þar
Á víð og dreif um óbyggðirnar
Að bæta mig og breytast
Það er ég
Það er ég
Náttúran