Þar sem börning brosa og hlæja
Baldursbrárnar líkar mér
Vindinum sem var að lægja
Vorið bað að heilsa þér
En skugginn fellur alltaf á mann
Þegar maður unir sér
Þar sem sólin glampar á þig
Sumar býr í hjarta þér
Traustir vinir ættu að segja sannleikann
Það sorglegt er
Hve gjörðir þínar ristu djúpt
Því aldrei neitt þú sagðir mér
Ég felldi tár í þína staði
En aldrei neitt þú sagðir mér
Þar sem börning brosa og hlæja
Baldursbrárnar líkar mér