Syneta by Bubbi Morthens
Syneta by Bubbi Morthens

Syneta

Bubbi Morthens * Track #4 On Sögur af landi

Download "Syneta"

Syneta by Bubbi Morthens

Performed by
Bubbi Morthens
About

Syneta er lag sem fjallar um sannsögulegt sjóslys þar sem skipið syneta klessir á “eyjuna” skrúð rétt fyrir utan Fáskrúðsfjörð. Eftir að syneta klessti á skrúð var sent út hjalparskilaboð frá synetu sem komst til Eskifjarðar þar sem Bubbi Morthens bjó á þeim tíma sem slysið átti sér stað.

Syneta Lyrics

Milli jóla og nýjárs um nótt við komum
Í nístingskulda, slyddu og él
Syneta hét skipið sem skreið við landið
Með skaddað stýri og laskaða vél
Við austurströndina stóðum á dekki
Störðum í sortans kólguský
Drunur brimsins bárust um loftið
Bæn mín drukknaði óttanum í
Innst í firðinum sáum við ljósin lýsa
Ljósin sem komu þorpinu frá
Um síðir þau hurfu í hríðina dökku
Um hjörtu okkar flæddi lífsins þrá
Þessa nótt skipið á Skrúðnum steytti
Skelfing og ótti tóku öll völd
Í bátana komumst við kaldir og þreyttir
Í kolsvarta myrkri beið aldan köld
Þá nótt við dóum, drottinn minn góður
Drukknuðum bjarglausir einn og einn
Himinn og haf sýndust saman renna
Okkar síðasta tak var brimsorfinn steinn
Í þangi við fundumst, en fimm ennþá vantar
Fjörunni aldan skilaði oss
Í hús á börum við bornir vorum
Með bláa vör eftir öldunnar koss
Ef þú siglir um sumar vinur
Og sérð við Skrúðinn brimsorfin sker
Viltu biðja þeim fyrir er fórust
Þeim fimm sem aldrei skiluðu sér

Your Gateway to High-Quality MP3, FLAC and Lyrics
DownloadMP3FLAC.com