Er þetta það sem þú hugsaðir um meðan ég hugsaði um peninga
Ég er búinn að fórna mörgu og mig langar helst ekki til að tal'um það
Myndirnar í hausunum
Rammaðar með höndunum
Stöndum ein á svölunum og föðmumst eins og lítil börn
Það sem að þú hugsaðir um meðan ég var alltaf í burtu
Ég er búinn að hugsa um allt sem var að gerast bæði hérna
Og líka það sem var að gerast heima á meðan
Allar teikningarnar sem þú tókst mynd af beint í brjóstkassann
Ég hugsaði um að koma og ég var í svona fjórar nætur samfleytt
Því ég einfaldlega náði ekki að sofa
Það sem að þú hugsaðir um meðan ég hugsaði um alheiminn
Var það til að hugga þig eða eru þetta hversdagslegar hugsanir?
Ég er tómari en ég nokkurn tímann vildi
Ég er þyrstur eins og vannært villidýr
Ég er ljótur bara rétt eins og þú sagðir við mig áður en ég fór
Og ég skal taka það til mín
Það sem að þú hugsaðir um þegar þú hugsaðir um hjörtun okkar
Slá bara ekki í takt en við ættum að reyna oftar
Tala meira um sálina, kanski pínu meira um hlutina
Kanski ekki vera föst alltaf á sama stað
Og ég veit þú takir undir það ef ég bara mætti segja það
Það sem að þú hugsaðir um þegar þú hugsaðir um okkur tvö
Ég er búinn að vera hugsa um það og ég held mig langi ekki til að heyra allt
Þegar þú hugsaðir um okkur tvö
Þegar þú hugsaðir um okkur tvö
Er þetta það sem þú talaðir um þegar þú talaðir um eirðarleysi?
Ég er búinn að hugsa það lengi
Og þegar ég kem heim finn ég ekki neitt
Kannski var það rétt sem þú sagðir þótt þú hafir verið pínu reið
Ég er tómari með hverjum deginum
Ég er þyrstari en ég var til að byrja með
Ég er ljótari en ég hélt í hjartanu
Það sem að þú talaðir um þegar þú talaðir um tilfinningar
Ég var ekki að hlusta en kannski er ég búinn að fatta allt sem þú sagðir núna
Ég er kannski seinn en samt blóð og bein
En ég hugsa aldrei um það, enda einn. (3x)
Það sem að þú talaðir um þegar þú talaðir um framtíðina
Ég ætlaði að deyja snemma
En það gæti alveg eins breyst til þess betra
Samt búinn að reyna, og reyna, og reyna
Eins og hjartað mitt þoli ekki meira
En það hefur voða lítið til að segja því þegar ég fæ eitthvað vill ég bara meira
Það sem að þú talaðir um þegar þú talaðir um hjörtun okkar
Slá bara ekki í takt til að segja að þitt slái oftar
Ég fattaði ekki boðskapinn
Ég er búinn að vera finna mig
Og ekki haft tíma til að finna til
Ég vona að þú skildir mig en þú skilur voða lítið víst
Það sem að þú talaðir um þegar þú talaðir um okkur tvö
Ég er búinn að hugsa um það og ég held ég hafi ekki skilið alveg allt
Þegar þú talaðir um okkur tvö
Þegar þú talaðir um okkur tvö
Nóttin var sú ll was produced by Kef LAVÍK.
Kef LAVÍK released Nóttin var sú ll on Wed Jun 28 2017.