Bubbi Morthens
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens
Við sjónarhringinn hrannast upp dökk ský
Ég sé dauðans stríðsbumbur berja
Ég heyri barnagrát og vopnagný
Og fótatak þúsunda manna sem herja
Á sannleikann og traðka hann niður
Í stríði er það fastur liður
Ég sé fjölmiðla réttlæta lygina ljóta
Að frelsið krefjist fórna, þeir segja
Klukkan tvö í beinni þeir fara svo að skjóta
Og börnin klukkan átta byrja að deyja
Og sannleikann þeir traðka niður
Í stríði er það fastur liður
Ég sé ofursta mæta og mæra stríðstólin
Blóðvellinum fjarri og brosandi fagna
Með fjögrastjörnuorðum og böðulsólin
Hengir þá sem vilja ekki þagna
Og sannleikann traðka þeir niður
Í stríði er það fastur liður
Ég sé fallna stráka stirðnaða og kalda
Stjarfa í framan á svipinn hissa
Eins og augnablikið þegar byssan falda
Skaut kúlunni sem hjartað var dæmt til að kyssa
Sæju þeir sannleikann falla niður
Í stríði er það fastur liður
Ég sé pólitíkusa á fjórum fótum skríða
Fylgispaka sem lúbarða rakka
Þeir dilla sinni rófu og herrunum hlýða
Fá að vera með, fyrir það skal jú þakka
Og sannleikann snúa niður
Í stríði er það fastur liður
Fastur liður was written by Bubbi Morthens.
Fastur liður was produced by Bubbi Morthens.