Frá munkafingrum í innri eyrun mín by Kef LAVÍK
Frá munkafingrum í innri eyrun mín by Kef LAVÍK

Frá munkafingrum í innri eyrun mín

Kef LAVÍK * Track #9 On Blautt heitt langt vont sumar

Frá munkafingrum í innri eyrun mín Lyrics

Við vöxum villt
Bálkennd og fljót
Í vitlausa átt

Erum úlfar-úlfar
Hlaupandi yfir sléttu-sléttu
Úr hörðu blóði-blóði
Í eldum helvítis

Hey
Lastu allt það sem ég senti á þig?
Varstu að hugsa um hvort að ég væri að nota eiturlyf
Og gert það óvísvitandi?

Hvítar álftir-álftir
Fljúgandi í allar áttir-áttir
Þær litlu línur-línur
Af símanum hjá mér

Held að það
Það þreytist seint
Eyðandi þér
Dropar á stein

Klórlykt-klórlykt
Rísandi upp úr klúti-klúti
Er ég tek línur-línu
Af sálinni í þér

Hey
Sérðu heiminn þinn í réttu ljósi?
Ef ég horfi nógu lengi er hann tilgangslaus
Hann gerir ekkert fyrir mig

Pöddur-pöddur
Skríðandi yfir sandinn-sandinn
Stórbrotið landslag-landslag
Í auðninni eftir mig

Mannleg náttúra
Þú sleppir ef þyngdin er of mikil
Fyrir líkamann
Þreytist frekar seint
Bara að horfa á þig
Og hugsa um allt sem ég geri þér

Sverðin frægin mín
Mannleg náttúra
Ljósbrotin á herðarblaðinu
Heitar jarðsprengjur
Heimurinn frá munkafingrum í innri eyrun mín
Ójafnvægið virkar örvandi
Ljótu örin þín
Minna mig á
Sverðin frægin mín
Mannleg náttúra
Ljósbrotin á herðarblaðinu
Heitar jarðsprengjur
Hеimurinn frá munkafingrum í innri eyrun mín
Ójafnvægið virkar örvandi
Ljótu örin þín
Minna á mig það þreytist frekar sеint
Þreytist frekar seint

Ég breytist frekar seint

Your Gateway to High-Quality MP3, FLAC and Lyrics
DownloadMP3FLAC.com