Það er kona í blokkinni þar sem ég bý
Bloggar fram á rauða nótt
Yfir gaurnum hennar hangir grátt ský
Hann á páfagauk með hettusótt
Þau standa í stigaganginum
Stundum þegar ég kem heim
Haldandi í rófuna á kettinum
Öskra með þýskum hreim
Þú ert útrásarmella
Bankaskella
Vinur þinn heitir Geir
Ég fer niður hnén og ég öskra og æpi
Ó Jenný, ekki blogga meir
Þessi kona í blokkinni þar sem ég bý
Bloggar um forsetann og frú
Ég þrái ekkert heitar en að komast í frí
En hún hvæsir: Næstur verður þú
Þau standa í stigaganginum
Stjörf þegar ég kem heim
Tyggjandi rófuna á kettinum
Öskra með úldnum hreim
Þú ert útrásarmella
Bankaskella
Vinur þinn heitir Geir
Ég fer niður á hnén og ég öskra og æpi
Ó Jenný, ekki blogga meir
Það er kona að blogga mig was written by Bubbi Morthens.
Það er kona að blogga mig was produced by Bubbi Morthens.
Bubbi Morthens released Það er kona að blogga mig on Tue Apr 24 2012.