Sofðu vel by Úlfur Úlfur
Sofðu vel by Úlfur Úlfur

Sofðu vel

Úlfur Úlfur * Track #8 On Tvær plánetur

The music player is only available for users with at least 1,000 points.

Sofðu vel Lyrics

[Verse 1]
Loftið er mettað af reyk og náfýlu
Aumingjar rifnir í tvennt af rándýrum
Hangi með fávitum eða frávikum
Skál fyrir þeim sem að drápu sig fyrr á árinu
Ég býð upp á næsta round
Ég býð ykkur góða nótt
Ég tala í gegnum tálknin
Því tungan er alltof stór
Þetta er fyrir þá sem leituðu skjóls inni í miðju hvirfibyl
Og fyrir þá sem ráfuðu ringlaðir ofan í kviksyndið
Mánaskin og blóðið flæðir eftir götunum
Með nagla í gegnum lófana og í fermingarfötunum
Ég legg mig undir ljósastaur sem kiknar undan snörunum
En trúi bara því sem að er skrifað um í blöðunum
Klæddur í jakkaföt
Mæti ekki í jarðarför
Tæti í mig mannakjöt
Bý mig undir ragnarök
Borg í ljósum logum, loksins finn ég fyrir yl
Hvernig get ég boðað frið, þegar ég er ekki til?

[Bridge]
Þú veist að það færist nær og nær
Þú heyrir hvert slag sem klukkan slær
Og ég
Birtist þér
Þú heyrir mig færast nær og nær
Þú finnur hvert slag sem klukkan slær
Og ég
Birtist þér

[Hook]
Og ég syng
Komdu með
Komdu með
Komdu með
Komdu með

[Verse 2]
Þeir veiku verða veikari
Enginn hefur orku eða vilja til að breyta því
Aldrei kom nein hetja en allir virðast vera leitandi
Heimilið mitt brennur og ég ætla að brenna með
Hrafnarnir þeir segja sögu næturinnar alla morgna
Ég býð þeim upp á te og hlusta þangað til ég sofna
Ég vakna á kvöldin og ég heilsa mínum vinum
Og við étum það sem úti frýs og bíðum í snjóbyljum
Þeir sem vilja ekki veiða sér til matar munu deyja einir
Hjörðin getur ei stoppað, heldur áfram, enginn er áfram dreginn
Ég sekk í svarthol ágirndar og afbrýði út í nágranna
Það myrkur sem að þekur hugann er að ágerast
Ekki kveikja á neinum kertum, ég er fyrir utan
Dragðu fyrir gluggann eða hentu í mig afgöngum
Frostið bítur kinnar mínar, myrkrið bíður eftir mér
Farðu inn og lokaðu eða komdu með í skemmtiferð

[Bridge]
Þú veist að það færist nær og nær
Þú heyrir hvert slag sem klukkan slær
Og ég
Birtist þér
Þú heyrir mig færast nær og nær
Þú finnur hvert slag sem klukkan slær
Og ég
Birtist þér

[Hook]
Og ég syng
Sofðu vel
Sofðu vel
Sofðu vel
Sofðu vel

Sofðu vel Q&A

Who wrote Sofðu vel's ?

Sofðu vel was written by Úlfur Úlfur & Arnar Úlfur & Helgi Sæmundur.

Who produced Sofðu vel's ?

Sofðu vel was produced by Úlfur Úlfur & Helgi Sæmundur & Redd Lights.

When did Úlfur Úlfur release Sofðu vel?

Úlfur Úlfur released Sofðu vel on Fri May 17 2013.

Your Gateway to High-Quality MP3, FLAC and Lyrics
DownloadMP3FLAC.com