Sjoppunni var lokað fyrir löngu síðan
Lítið að gerast en blessuð blíðan
Bjargar deginum í dag
Æðarkollan þarf að díla við kvíðann
Kannski er bara svo langt síðan að
Fjörðurinn flutti henni lag
Ryðgaður kompás, kassi á floti
Köttur að mjálma í dimmu skoti
Og bergmálið svarar: Halló
Öll húsin virðast vera í roti
Hér sést enginn þingmaður í framapoti
Jafnvel örlögin virðast hafa fengið nóg
Það er ekkert að
Það er ekkert að
Sagði presturinn
Í sinni tómu kirkju og bað
Bílar framhjá hér bruna en stoppa aldrei
Börnin í gluggunum hrópa öll: Vei
Hamborgarinn fór héðan fyrstur
Hér hefur ekki sést í áratugi ungmey
Hvað þá heyrst í myrkri eitt lítið nei
Enginn ungur maður verið fyrstur
Það er ekkert að
Það er ekkert að
Sagði presturinn
Í sinni tómu kirkju og bað
Yfir plássinu hangir sólin syfjuð
Sest á hafið, virkar pínu lyfjuð
Hún man tímana tvenna
Frjálshyggjan kom til þeira klyfjuð
Græðgin var bara rétt byrjuð
Blessaðar sálirnar að brenna
Sjoppan was written by Bubbi Morthens.
Sjoppan was produced by Bubbi Morthens.
Bubbi Morthens released Sjoppan on Tue Apr 24 2012.