Sem aldrei fyrr by Bubbi Morthens
Sem aldrei fyrr by Bubbi Morthens

Sem aldrei fyrr

Bubbi Morthens * Track #1 On Lífið er ljúft

Download "Sem aldrei fyrr"

Sem aldrei fyrr by Bubbi Morthens

Performed by
Bubbi Morthens

Sem aldrei fyrr Lyrics

[Verse 1]
Suma dreymir gull og græna skóga
Og gráta þeir eiga ekki meir
Með gallbragð í munni brosa beiskir
Og bölva þar til sálin í þeim deyr
Og Júdas er verðlaus lúser
Sem lífinu hafnaði segja þeir

En mig dreymir aðeins þessa einu konu
Það er eldfimt loftið þar sem hún fer
Það er gott að elska og eiga hennar hjarta
Og hún elskar mig eins og ég er
Og ég veit hvar frelsið er að finna
Í faðmi hennar það bíður eftir mér

[Chorus]
Og það er vont að vera týndur
Í veröld sem engar hefur dyr
Og fyrir þá sem aldrei hafa elskað
Hlýtur tíminn að standa kyrr
En ég er ástfanginn
Sem aldrei fyrr

[Verse 2]
Jú, mig dreymir aðeins þessa einu konu
Og allan þennan þokka sem hún ber
Það er gott að elska og eiga hennar hjarta
Því hún tekur mér eins og ég er
Og ég veit hvar frelsið er að finna
Í faðmi hennar það bíður eftir mér

[Chorus]
Og það er vont að vera týndur
Í veröld sem engar hefur dyr
Og fyrir þá sem aldrei hafa elskað
Hlýtur tíminn að standa kyrr
En ég er ástfanginn
Sem aldrei fyrr

Your Gateway to High-Quality MP3, FLAC and Lyrics
DownloadMP3FLAC.com