Til ei lætur tíðin mér
Trúrri sætu velja hér
Ljóðin fríðu breidd á blað
Bagar stríðið daglegt það
Margt að snasar manni þeim
Mæðu flas um víðan heim
Sem í dagan æsku ær
Á forlaga sjóinn rær
Ormar gnaga illir þar
Yfir dragast banvænar
Eldrigningar óyndis
Afleiðingar gæfuslys
Hyrjar baldinn byrinn þver
Byrjar aldrei fyrir grér
Drafnar hænu hafnar því
Hafnir mænir stafninn í
Rímur af Göngu-Hrólfi was written by Steindór Andersen.
Rímur af Göngu-Hrólfi was produced by Steindór Andersen & Sigur Rós.
Steindór Andersen released Rímur af Göngu-Hrólfi on Sun Apr 01 2001.