Nú er Gunna á nýju skónum, nú eru´að koma jól
Siggi er á síðum buxum, solla´á bláum kjól
Solla´á bláum kjól, solla´á bláum kjól
Siggi er á síðum buxum, solla´á bláum kjól
Pabbi enn í ógnarbasli á með flibbann sinn
"Fljótur, Siggi, finndu snöggvast flibbahnappinn minn
Flibbahnappinn minn, flibbahnappinn minn
Fljótur, Siggi, finndu snöggvast flibbahnappinn minn"
Kisu er eitthvað órótt líka, út fer brokkandi
Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi
Er svo lokkandi, er svo lokkandi
Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi
Loksins hringja kirkjuklukkur kvöldsins helgi inn
Á aftansöng í útvarpinu allir hlusta um sinn
Allir hlusta um sinn, allir hlusta um sinn
Á aftansöng í útvarpinu allir hlusta um sinn