Ég er að horfa hugfanginn
Í hlýjum sumarblænum
Yfir litla lækinn minn
Sem líður fram hjá bænum
Ó, hve marga æskustund
Áður hér ég dvaldi
Saklaust barn með létta lund
Og leggina mína taldi
Bæ ég lítinn byggði þar
Og blómum utan skreytti
Yfir tún og engjarnar
Oft ég læknum veitti
Nú er ekkert eins og fyr;
Á öllu sé ég muninn:
Löngu týndir leggirnir
Og litli bærinn hruninn
Æska hverfur. Yndi dvín
Allt er líkt og draumur
Áfram líður æfin mín
Eins og lækjarstraumur
Meðan æðum yljar blóð
Og andinn má sig hræra
Skal ég syngja lítil ljóð
Læknum silfurtæra
Þegar eg er uppgefinn
Og eytt hef kröftum mínum
Langar mig í síðsta sinn
Að sofna´ á bökkum þínum
Lækurinn was written by Steindór Andersen.
Lækurinn was produced by Steindór Andersen & Sigur Rós.
Steindór Andersen released Lækurinn on Sun Apr 01 2001.