Ég segi það satt by LazyTown
Ég segi það satt by LazyTown

Ég segi það satt

LazyTown * Track #3 On Jól í Latabæ

The music player is only available for users with at least 1,000 points.

Ég segi það satt Lyrics

[Verse 1]
Ævintýrin gerast enn
Eins og þið munuð heyra senn
Ég var á gangi oní bæ
Einn .. en það var alltí læ
Þá sá ég hreindýr þjóta hjá
Þau mig næstum klesstu á
En Jólasveinninn greip í mig
Og leyfði mér að sitja fyrir framan sig

[Pre-Chorus]
Ég segi það satt
Við fórum svo hratt
Við þutum af stað
Og ég næstum því datt

[Chorus]
Þessu varla trúum við
Varstu nú að segja satt
Hættið þessu hlustið þið
Bíðið, þar til þið heyrið hvað gerðist næst
Sko!

[Verse 2]
Hann vildi stoppa sjoppu í
Og gefa mér alls konar gotterí
Sleikjóinn var heillandi
Rauður hvítur og glansandi
Ég var á fullu að éta hann
Þegar að sleðinn til hliðar rann
Ég ruglaðist af hreindýra hnegginu
Og festi sleikjóinn í skegginu

[Pre-Chorus]
Ég segi það satt
Ég fór svo hratt
Er við þutum af stað
Að hann á mig datt

[Chorus]
Þessu varla trúum við
Varstu nú að segja satt
Hættið þessu hlustið þið
Bíðið, þar til þið heyrið hvað gerðist næst
Sko!

[Bridge]
Skeggið ónýtt .. mér var kalt
Gjafir fljúgandi út um allt
Ég reyndi’ að stýra sleðanum
Með Sigga, hangandi á honum
Búðargluggar þutu hjá
Bílar okkur flautuðu á
Ég reyndi’ að tosa í taumana
En tætti’í sundur saumana
Sko á jólasveinabuxunum

[Pre-Chorus]
Ég segi það satt
Við fórum svo hratt
Við þutum af stað
Og ég næstum því datt

[Chorus]
Þessu varla trúum við
Varstu nú að segja satt
Hættið þessu hlustið þið ..
Bíðið, þar til þið heyrið hvað gerðist næst

[Chorus]
Þessu varla trúum við
Varstu nú að segja satt
Þessu varla trúum við
Varstu nú að segja satt

Ég segi það satt Q&A

Who wrote Ég segi það satt's ?

Ég segi það satt was written by Máni Svavarsson.

Who produced Ég segi það satt's ?

Ég segi það satt was produced by Máni Svavarsson.

Your Gateway to High-Quality MP3, FLAC and Lyrics
DownloadMP3FLAC.com