Fjaran togaði í bræður tvo sem vildu leika sér
Aldan hjalaði saklaus, sólin skein á gler
Allan daginn sér undu glaðir með skeljarnar
Á meðan norðanvindurinn ýfði upp öldurnar
Um kvöldið komu ekki heim út í rökkrið pabbi fór
Kallandi út í myrkrið, kominn var haugasjór
Hann æddi niður í fjöruna en fann þar enga slóð
Brimið flæddi upp á garðinn þar sem hann fölur stóð
Við hrópuðum út í sortann en enga hjálp var að fá
Uppi á steini sátum við kallandi ykkur á
Aldan kom, við urðum hræddir mamma mín
Fyllti síðan vitin, tók okkur heim til sín
Fjöruna gengu mennirnir, gengu dag og nótt
Ekki einni sálu í þorpinu var þá daga rótt
Síðan dofnaði vonin, sorgin kom köld
Með skuggalanga fingur og sín svörtu tjöld
Föður bræðranna dreymdi draum þar sem hann sá
Þá liggjandi í hellisskúta heimilinu rétt hjá
Í fangi hvors annars þeir lágu, augu hans urðu aum
Í þrjár nætur til viðbótar hann dreymdi sama draum
Við hrópuðum út í myrkrið en enga hjálp var að fá
Uppi á steini sátum við kallandi ykkur á
Aldan koma við urðum svo hræddir mamma mín
Fyllti síðan vitin, tók okkur heim til sín
Hann fór á fjórða degi og fann þá á þeim stað
Sem hann sá í drauminum, hann þakkaði drottni það
Í sandinum þeir lágu, andlitin friðsæl að sjá
Hafið þennan dag var slétt og aldan blárri en blá
Við vöknuðum og sólin skein svo undur skær
Skein á græna haga, yfir öllu fagur blær
Pabbi og mamma, drottinn dró okkur í var
Í drottins garði göngum nú, við bíðum ykkar þar
Ballaðan um bræðurnar was written by Bubbi Morthens.
Ballaðan um bræðurnar was produced by Bubbi Morthens.
Bubbi Morthens released Ballaðan um bræðurnar on Tue Apr 24 2012.