Af hverju þarf þetta að vera svona?
Ég vil hafa allt eins og það var
Þegar dagurinn var lengi að líða
Og allir pakkarnir þeir biðu þar
Nú hefur tíminn heldur betur liðið
En minningarnar geymdar um ár og sið
Við gefum gjafir nú eins og alltaf
Og kertin og spilin nánast liðin tíð
Komdu um jólin
Vertu hjá mér
Stjörnur og snjórinn
Fullkomin stund
Samt vantar eitthvað
Eitthvað það er
Þetta er hátíð
Sem allir eiga
Og nú veit ég hvernig það er
Nú nálgast hátíð ljóss og friðar
Og fólkið kemur saman enn á ný
Og bara ef það væri alltaf svona
Þá gaman væri þessum heimi í
Komdu um jólin
Vertu hjá mér
Stjörnur og snjórinn
Fullkomin stund
Samt vantar eitthvað
Eitthvað það er
Þetta er hátíð
Sem allir eiga
Og nú veit ég hvernig það er
Eiga ekki jólin að gleðja
Gefa gjöf, von og þrá
Þessa stund sem allir eiga
Jólunum á
Komdu um jólin
Vertu hjá mér
Stjörnur og snjórinn
Fullkomin stund
Samt vantar eitthvað
Eitthvað það er
Þetta er hátíð
Sem allir eiga
Og nú veit ég hvernig það er
Og mig langar að hafa þig hér